REITIR: Útboð á skuldabréfum 27. ágúst 2024
August 23 2024 - 12:02PM
UK Regulatory
REITIR: Útboð á skuldabréfum 27. ágúst 2024
Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum
þriðjudaginn 27. ágúst næstkomandi.
Boðin verða til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokknum
REITIR150534. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu
tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 3,935% vexti og er
með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls
fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Greiðslur vaxta
og afborgana eru á tveggja mánaða fresti.
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð
bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekin er. Félagið
áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða
að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er
mánudagurinn 2. september 2024. Óskað verður eftir því að nýju
bréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland
samhliða.
Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4.
mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020.
Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu
framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins,
reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf.
birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu
grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.
Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem
og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson,
fjármálastjóri, einar@reitir.is, sími 669 4416 og
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.
Reitir Fasteignafelag Hf (LSE:0R6P)
Historical Stock Chart
From Oct 2024 to Nov 2024
Reitir Fasteignafelag Hf (LSE:0R6P)
Historical Stock Chart
From Nov 2023 to Nov 2024